söguleg gögn á heimsmarkaðsverði kopars

Birgir Óli Sigmundsson's Avatar

Birgir Óli Sigmundsson

08 May, 2011 05:11 PM via web

Halló

Væri möguleiki á að birta heimsmarkaðsverð á kopar og annarri hrávöru í tímaröð (time series)?

kv. Birgir Óli

  1. 2 Posted by Birgir Óli Sigmundsson on 08 May, 2011 05:13 PM

    Birgir Óli Sigmundsson's Avatar

    Í "state" á vitanlega að standa "open". Hakaði óvart við hitt.

  2. Support Staff 3 Posted by Þorlákur Lúðvíksson on 09 May, 2011 10:41 AM

    Þorlákur Lúðvíksson's Avatar

    Sæll Birgir,

    ef þú ert að spyrja hvort viðeigandi sé að birta þetta sem tímalínu, þá er svarið já, algerlega. Ef þú ert að spyrja um hvort gögnin séu til hjá okkur, þá þarf ég nánari lýsingu á "annarri hrávöru" til að geta gefið innihaldsríkt svar.

    Hér er það sem kemur upp við leit að "copper prices" hjá okkur: http://datamarket.com/data/list/?q=copper+prices

    Kveðja,
    Þorri

  3. 4 Posted by Birgir Óli Sigmundsson on 09 May, 2011 11:20 AM

    Birgir Óli Sigmundsson's Avatar

    sælir

    Kærar þakkir fyrir skjót svör. Ég skoðaði nokkrar niðurstöður úr hlekknum
    sem þú sendir mér, en skil ekki alveg hvernig þetta virkar. Veistu hvort
    hægt sé að fá upplýsingarnar í tímalínu þarna? Það sem ég á við með "annarri
    hrávöru" eru t.d. þær vörur sem tilgreindar eru á Málmakauphöllinni í London
    www.lme.co.uk

    kv. Birgir

    Þann 9. maí 2011 11:41, skrifaði Þorlákur Lúðvíksson <
    ***@tenderapp.com>:

  4. Support Staff 5 Posted by Þorlákur Lúðvíksson on 09 May, 2011 01:27 PM

    Þorlákur Lúðvíksson's Avatar

    Sæll,

    til að birta gögn sem tímalínu á DataMarket.com þarf að haka við það sem maður vill birta í stikunni vinstra megin á síðunni. Hér er t.d. sett sem búið er að stilla: http://datamarket.com/data/set/194r/industry-producer-prices-index-...

    Prófaðu að líta á myndböndin á hjálparsíðunni okkar til að glöggva þig á því hvernig þetta virkar (http://datamarket.com/support/).

    Ekki hika við að spyrja ef eitthvað má útskýra betur :)

    Kveðja,
    Þorri

  5. 6 Posted by Birgir Óli Sigmundsson on 09 May, 2011 01:45 PM

    Birgir Óli Sigmundsson's Avatar

    Sælir

    Var búinn að finna út hvernig á að fá gögnin upp. En hvernig get ég fengið
    "actual" verðin? (svo ég geti reiknað út meðalverð þann og þann mánuðinn
    o.s.frv). Það sem kemur fram á linknum sem þú sendir eru bara
    prósentubreytingar milli mánaða.

    kv. Biggi

    Þann 9. maí 2011 14:27, skrifaði Þorlákur Lúðvíksson <
    ***@tenderapp.com>:

  6. 7 Posted by Birgir Óli Sigmundsson on 09 May, 2011 01:46 PM

    Birgir Óli Sigmundsson's Avatar

    Hitt er svo annað mál að ég er fyrst að skoða þennan vef núna og hann er í
    einu orði sagt magnaður! til hamingju með þetta.

    kv. Biggi

    Þann 9. maí 2011 14:45, skrifaði Birgir Óli Sigmundsson <
    ***@gmail.com>:

  7. Support Staff 8 Posted by Þorlákur Lúðvíksson on 09 May, 2011 02:56 PM

    Þorlákur Lúðvíksson's Avatar

    Takk fyrir hrósið :)

    Varðandi settið sem ég stillti upp, þá valdi ég það af handahófi svo líklegt er að gögnin séu ekki akkúrat þau sem þú varst að leita að.

    Ég veit ekki hvort við eigum gögnin sem þú ert að leita að. Verið getur að ritsjtjórinn okkar (Fjóla) geti fyllt í eyðurnar hvað það varðar. Ég veit að Xignite eru með verð á eðalmálmum (http://datamarket.com/data/list/?q=provider%3A184+metal). Eitthvað sem þig vantar gæti verið þar.

  8. Support Staff 9 Posted by Fjóla Ósk Aðalsteinsdóttir on 09 May, 2011 03:23 PM

    Fjóla Ósk Aðalsteinsdóttir's Avatar

    Sæll,

    Við eigum nokkuð af gögnum frá U.S. Geological Survey sem snúa að málum og er hér eitt með verði á kopar: http://data.is/lT91IU

    Annars eru þau önnur gögn sem við eigum um verð á málmum frá Xignite eins og Þorri nefni hér að ofan en þau þarf að borga fyrir að fá aðgang að.

    Þú getur svo leita að fleiri málmum og upplýsingum um þá í gagnasettunum sem til heyra U.S. Geological Survey.

    Kveðja,
    Fjóla

  9. 10 Posted by Birgir Óli Sigmundsson on 09 May, 2011 07:56 PM

    Birgir Óli Sigmundsson's Avatar

    Sæl Fjóla/Þorlákur

    Þakkir fyrir allar þessar upplýsingar. Vitið þið hvar ég get keypt þau gögn
    sem mig vantar og hvað þau myndu kosta?

    kv. Biggi

    Þann 9. maí 2011 16:23, skrifaði Fjóla Ósk Aðalsteinsdóttir <
    ***@tenderapp.com>:

  10. 11 Posted by Birgir Óli Sigmundsson on 18 May, 2011 04:06 PM

    Birgir Óli Sigmundsson's Avatar

    Sæl

    Ég fór inn á þennan link
    http://datamarket.com/data/set/1eng/metal-spot-prices og ætlaði að kaupa þau
    gögn sem mig vantar, en ég sé ekki að koparinn sem mig vantar sé þar. Hef ég
    vitlaust fyrir mér?

    kv. Birgir

    Þann 9. maí 2011 20:55, skrifaði Birgir Óli Sigmundsson <
    ***@gmail.com>:

  11. Support Staff 12 Posted by Fjóla Ósk Aðalsteinsdóttir on 18 May, 2011 04:17 PM

    Fjóla Ósk Aðalsteinsdóttir's Avatar

    Sæll,

    Það eru ekki verð á kopar hjá Xignite heldur gulli, silfri, platinum, palladium og fleirum. Þau verð sem við eigum á kopar eru eins og áður segir hér: http://data.is/lT91IU

    Við erum þó að skoða að taka inn gögn frá LME svo það gæti verið von á þessu fyrr eða síðar.

    Kveðja,
    Fjóla Ósk

  12. Fjóla Ósk Aðalsteinsdóttir closed this discussion on 18 May, 2011 04:17 PM.

Comments are currently closed for this discussion. You can start a new one.