Hvernig merki ég atburði inn á grafið sem ég er að vinna með?
Atburðamerkingar sýna fréttir eða aðra atburði á línuriti. Til að bæta nýjum atburði við grafið, smellir þú einfaldlega á takkann "Atburðir".

Til að merkja frétt sem atburð á grafið þá slærðu inn viðeigandi leitarorð og smellir á "Leita að atburði". Þá birtist listi af fréttum sem uppfylla leitarskilyrðin. Nú getur þú valið einstakar fréttir og merkt þær inn á grafið með því að smella á "Bæta við lista".
Til að slá inn atburð smellir þú á takkann "Slá inn atburð". Veldu dagsetningu atburðarins, sláðu inn titil og lýsingu og smelltu á "Í lagi".
-
Að finna og vinna með gögn
- Ég finn ekki gögnin sem ég er að leita að. Hvað geri ég?
- Hvernig ber ég saman gögn úr tveim eða fleiri gagnasettum?
- Hvernig merki ég atburði inn á grafið sem ég er að vinna með?
- Hvernig vista ég gögn sem ég hef valið þannig að ég geti gengið að þeim aftur seinna?
- Get ég sett mín eigin gögn inn á DataMarket?
- View all
-
Að nota gögn af DataMarket annars staðar
-
Gæði gagna