Hvernig get ég birt gröf og myndrit frá DataMarket á minni vefsíðu?
DataMarket býður upp á sérstaka möguleika sem eru sérstaklega ætlaðir til að fella myndrit frá okkur inn á aðrar síður. Þannig geturðu birt myndrit á þinni síðu með nákvæmlega sama hætti og þú hefur stillt því upp á DataMarket með gagnvirkum möguleikum, svo sem að notendur geti lesið gildi af grafinu með því að renna músarbendlinum yfir hana, tengingu í gögnin á DataMarket síðunni til frekari skoðunar eða vinnslu og sjálfvirka uppfærslu á myndritinu þegar ný gögn berast.
Þennan eiginleika er að finna undir "Deila" hnappnum, undir myndritinu. Smelltu einfaldlega á "Fella inn í vef" og fylgdu leiðbeiningunum.

Þú getur líka vistað öll myndrit sem þú býrð til á DataMarket á tölvuna þína sem myndaskrár. Þaðan getur þú svo hlaðið þeim upp í blogg- eða vefumsýslukerfi, rétt eins og hverri annari mynd.
-
Að finna og vinna með gögn
- Ég finn ekki gögnin sem ég er að leita að. Hvað geri ég?
- Hvernig ber ég saman gögn úr tveim eða fleiri gagnasettum?
- Hvernig merki ég atburði inn á grafið sem ég er að vinna með?
- Hvernig vista ég gögn sem ég hef valið þannig að ég geti gengið að þeim aftur seinna?
- Get ég sett mín eigin gögn inn á DataMarket?
- View all
-
Að nota gögn af DataMarket annars staðar
-
Gæði gagna