Hvernig veit ég hvort gögnin sem ég fann á DataMarket séu rétt og uppfærð með nýjustu breytingum?

Til að sjá uppruna gagna, hvenær þau voru síðast uppfærð og önnur lýsigögn þeirra smellir þú á upplýsinga-táknið (i) sem birtist við titil hvers gagnasetts í leitarniðurstöðum og annars staðar þar sem gagnasettin koma fyrir. DataMarket gerir ekki tilraun til þess að meta áreiðanleika gagnanna, en gerir sitt ítrasta til að tryggja að gögnin séu óbreytt frá uppruna. Við hvetjum notendur til að staðreyna öll gögn sem þeir finna á DataMarket.com með því að skoða upprunaheimildirnar.